Styrktaraðilar og sýnendur
Til að gera ráðstefnuna enn glæsilegri er þér/fyrirtæki þínu boðið að kynna vörur þínar og/eða þjónustu. Sýning á vörum og þjónustu tengdri hjúkrun, heilsuvernd, hollustu og vellíðan verður sett upp forrými í Hofi fyrir framan aðalfyrirlestrarsalinn og þar verður jafnframt borið fram kaffi og hádegisverður ráðstefnudagana. Þeir aðilar sem kynna vörur eða þjónustu á ráðstefnunni verða tilgreindir á vefsvæði ráðstefnunnar.
Í viðhengi er pöntunarblað þar sem fram kemur kostnaður við þátttöku ásamt möguleikum á styrktaraðild.
Ráðstefnuþjónustan Athygli ráðstefnur er samstarfsaðili ráðstefnunnar og heldur
Þórunn Dögg Johnsen Harðardóttir utan um styrktarmál og skipulag sýningarinnar.
Frekari upplýsingar veitir Þórunn Dögg (netfang: [email protected], gsm: 899 -5878).
Með von um góðar undirtektir,
f.h. undirbúningsnefndar
Helga Rósa Másdóttir
Sviðsstjóri fagsviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
